|
|
31.08.2005 14:52:31 / Sigurdís
halló halló
Vegna lélegrar nettenginar í allt sumar hef ég ekki haft
þolinmæði að setjast við tölvuna heima og skrifa eitthvað en núnar
þar sem góð nettenging er komin í mitt líf þá verður vonandi
breyting á 
En nú er sumarið búið og vinnunni minni heima í sveit lokið og
verð ég að játa það að ég er pínu farin að sakna sveitarinnar . En
ég og grjóni erum nú flutt í mjög fína íbúð sem tilheyrir
stúdentaíbúðum á Akureyri og líður vel þar. Háskólinn byrjaði svo í
seinustu viku með nýnemaviku sem átti að kynna okkur fyrir
háskólanum og samnemendum okkar og lukkaðist það bara vel. Svo fór
alvaran að byrja: NÁMIÐ, þetta er sko enginn dans á rósum skal ég
segja ykkur og fyrstu dagana nagaði ég neglurnar alveg niðrí kviku
en þær eru að byrja að vaxa aftur gvuði sér lof. Það eru 26 sem eru
að læra iðjuþálfun núna en ekki nema 18 sem komast áfram um
áramótin þannig að það er heldur ekki til að bæta stressið. En það
eru allir búinir að vera að peppa mann svo mikið upp að mar er
farinn að líta á þetta með aðeins léttara hugarfari og mar farinn
að kynnast fólkinu pínu sem er með manni þannig að mar reynir bara
ekki að hugsa um það heldur .Félagslífið í skólanum er líka svo
allt annað en mar mátti venjast í VMA t.d fyrstu vikuna mina datt
ég í það 2 sinnum með háskólanum,(hmmm góður háskóli ) sem
mér fannst bara nokkuð gaman skal ég segja ykkurJ.
Ég skal samt viðurkenna að ég er lítið farin að læra sem er ekki
gott en bæti vonandi úr því sem fysrt.
Næsta sunnudag hætti kemst ég svo í fullorðina tölu þar sem ég
verð 20!!!! VÚHÚ hvað getur mar annað sagt. Þannig að það verður
örugglega party í nýju íbúðinni okkar í tilefni af því og ykkur sem
ég þekki eruð velkomin þangað á laugardagskvöldið í heljarinnar
stuðJ
Ég er að hugsa um að kaupa mér fartölvu, sýnist sko ekkert veita
að því að vera með svoleiðist í nokkrum tímum hjá
mérJ
En jæja þetta er nú það sem er að gerast í lífi mínu þessa
dagana,
Skrifa vonandi bráðlega attur
Kv. Sigurdís
»
27.07.2005 19:05:34 / Ágústa
Tími til kominn að skella inn afsökunarbeiðni á leti okkar að
skrifa hérna inn og skrifa nokkrar línur um hvað sumarið er búið að
snúast um hjá mér... Vinna, vinna og aftur vinna og svo smá svefn
þar inn á milli... lítið annað fréttnæmt búið að gerast! Er
einungis búin að gera þrjá hluti í sumar sem er vert að nefna... 1.
Fór til Egilsstaða með systrum mínum og var þar djammað feitt... 2.
Skrapp suður eina helga suður en var eitthvað slöpp allan tímann
þannig að lítið var gert. 3. Guðfinna átti afmæli svo í gær og
fórum við því í Skagafjörðinn í River Rafting sem var alveg magnað.
hefði samt alveg verið til í að prufa stóru ánna og fá smá
adrenalínkikk en minni áin var samt líka geggjuð! Fengum okkur svo
að éta í Varmahlíð og fórum svo í bíó á The Amityville Horror sem
var alveg ógeðslega góð... mæli sterklega með henni! Fyrsta skipta
á ævinni sem ég hef gripið fyrir augun á hryllingsmynd. Er svo bara
búin að vera á akureyri í dag og slappa af og njóta frísins míns.
Ég, Guffa og Hildur erum bara búnar að vera að flækjast um bæinn í
dag og leita að íbúð og vinnu fyrir haustið. Gekk ágætlega með
íbúðarleitina svosem en ekkert með vinnu.. hef ekki hugmynd um hvað
ég á að gera hér í vetur.. en eitt er víst, ég ætla ei lengur að
vera heima í sveit. Verð bara þunglynd og veik af því! Þannig að
Akureyri hér æ kome!!!! Er annars bara búin að vera að vinna í
Skúlagarði og á Rifós og er lífið búin að snúast eingöngu um það!
Alveg helvíti leiðinlegt verð ég að segja! En vegna þess hef ég
lítið annað til að skrifa hér og verðið þið því að bíða þar til
eitthvað markvert gerist sem ég get skrifað um. bæjó smæjó Ágústa
»
08.06.2005 21:58:29 / Sigurdís
Halló halló allir saman Nú er mar orðinn súdent og búinn að sækja
um í háskólanum á Akureyri.. veit ekki hvernig það á eftir að enda
en örugglega gamanJ Fór svo til Reykjavíkur til að sjá hina
stórgóðu hljómsveit Iron Maiden.. algjör snild það sko víhí. En já
við nokkrar frænkurnar tókum okkur saman og héldum frænkukvöld með
öllu tilheyrandi og enduðum svo niðrí bæ, geggjað gamanJ Ég og
helga vorum hlaupandi í allar verslanir í kring og bjóða eh fólki í
partý og fundum svo annað party rétt hjá okkur og tróðumokkur
þangað.. alveg ótrúlegar híhíJ En næst á dagsránni er : vinna…
ýdalaball.. skírn og stúdentveisla Og já pabbi minn var að kaupa
það sniðugastast í heimi.. garðsláttuvél sem mar situr í og keyrir…
mæli með svoleiðis tryllitæki Sée ya sigurdís
»
12.05.2005 10:56:59 / Sigurdís
Nú geta allir þurkað sér um augun og og tekið gleði sína á ný
því að hér koma góðar fréttir
X-ið mun hefja göngu sína á ný föstudaginn 13.
maí!!!!. sem er nebblega á
morgun!!!!!!!!!
þetta er ljósið í myrkrinu í þessum prófum
okkar!
Legg til að við hittumst nú og hlutstum saman á
þessi yndisfögru hljóð sem eiga eftir að koma út úr útvarpstækjum
landsmanna á morgun!!
og svo djamma.. skál- húrra húrra
húrra
kv.. Sigurdís í góðu skapi
»
07.05.2005 19:59:33 / Hildur
Í Virðingarskyni minningu
X-ins
Já þar sem
þessi síðan var nú upprunalega stofnuð í minningu x-ins
  þá ætla ég ja ekki að fjalla um það heldur um
“hina” stöðina sem þótti nú mun merkilegri en X-ið þó
ég geti nú ekki verið sammála því. En já þannig er mál með
vexti að ég skellti mér suður á mánudaginn sem og var fram á
fimmtudag þannig að ég náði djamminu á miðvikudagskvöldinu
með stelpunum í Reykjavík 
Já
til að byrja með þá fórum við á Sólon ekkert nema hrikaleg tónlist
þar, og já mér hefur aldrei líka sérlega vel við þann stað en jú
það var nú svo stutt stopp þannig ég lét mig hafa það en
já þá var stefnan
tekin á Ara í ögri held hreinlega að við höfum náð 3 mínútum þar
inni en þá var hlaupið út og kíkt á Prikið jú fínasti staður ekki
þessi hræðilega leiðinlega FM tónlist, “hin” stöðin sem sagt, já
hitti reyndar gamla vinkonu mína þar en var hent út af stelpunum
því ekki ætluðu þær að vera lengur þar inni, en lenti svo í því að
bíða eftir þeim úti þar sem þær voru nú komnar í e-a strákaskoðun
og þarna beið ég svo úti í kuldanum eftir þeim til að þess að vera
dregin upp á Hverfisbarinn og þvílíkur leiðindastaður,
hryllilegur og að sjá eins og flest allar stelpurnar sem stunda
þennan stað þær eru alveg tómar í hausnum já sem og allt fólkið,
en það hlýtur líka að vera það miðað við raðirnar sem það bíður
stundum í til þess eins að komast þangað inn, en já tónlistin
leiðinleg og varla pláss til að anda, eiginlega eina skemmtun mín
þetta kvöld var þegar ég endaði með 3 ljóskum inn á klóstti en það
var eiginlega brandari út af fyrir sig hvernig þær höguðu sér...
held ég hafi ekki lent í þeim heimskari
En já endaði á því að fara bara og keyra ein
niður Laugarveginn á meðan ég beið eftir stelpunum sem voru enn á
djamminu en já þurfti að keyra svo snemma heim að ég ákvað að vera
edrú...
En já Sigrún no offence þið voruð frábær
félagsskapur enda ekki allir sem hrynja reglulega niður stigann
þarna eða þvo á sér hausinn upp úr þurru í vaskinum... fíla bara
engan vegin þessa staði, plús það að ég var edrú og
veik
En
já Ester við verðum bara að hittast í næstu heimsókn minni suður og
kíkja á almennilegt djamm.
En
já þar sem ég sat ein út í horni á Hverfis þá gat ég ekki annað en
hugsað út í X-ið og muninn á þessari tónlist og komast að því mér
til hryllingar að þetta vill fólk hlusta á og þetta ER EKKI TÓNLIST
eins og spilað er á þessum stöðum. En já því miður er það hætt og
ekki fáum við X-FM norður þannig að ég hlusta bara öllum stundum á
rás 2 í vinnunni held hreinlega að það sé næsti kostur á eftir
okkar yndislega Xi
Í
minningu X-ins Hildur Hrönn
»
05.05.2005 13:19:56 / Sigurdís
Jæja lömbin mín ef þið hafið verið að velta fyrir ykkur hvort hún
Sigurdís væri nú alveg dauð þá hafið þið haft rangt fyrir ykkur..
hér með er ég á lífii en sökum leti og hvað mar hefur nú mikið að
gera á þessum tíma hef ég bara ekkert bloggað.
En það hefur margt gerst seinustu daga. Eins og Ágústa skrifaði
hérna fyrir neðan vorum við að dimmitera í seinustu viku og var það
alveg Geggjað gaman  samt soltið erfitt að vera að drekka frá kl 1
um daginn til 4 um nóttina:/ en væri nú samt alveg til í að
endurtaka þetta einhverntímann, og þá sérstaklega að fá að vera
kengúra og hoppa út um allt.. thíhí..
Svo er nú þessi blessuðu próf byrjuð  . er búin að taka 3 og á 3
erftir.. get ekki beðið . er samt í 6 daga fríi núna sem ég ætlaði
að nota til þess að gera heimasíðuna mína í Efnafræði en eiga nú
örugglega eftir að fara bara í eitthvað bull  Meðal annars fór í
þessi fjandans samræmdu próf í íslensku og stærðfærði.. Etta er svo
mikið bull.. ég Get nú ekki sagt að ég hafi gert mikið á þessum
prófum var það reið útí þau  Hey ég fann útskriftardraktina mína
í gær.. á samt eftir að kaupa hana og kostar hún litlar 20.000 kr..
það er alveg ótrúlegt hvað það er dýrt að útskrifast8 en mar lætur
sig nú hafa það þar sem mar gerir þetta nú bara einu sinni 
Ég held ég hafi aldrei á ævinni borðað eins mikið af pízzu eins og
ég gerði í gær.. fór með kallinum á Greifann og borðaði gjörsamlega
yfir mig.. á ekki eftir að vera svöng næstu dagana ligg ennþá á
meltunni úff.kjammsi kjamms. Svo fórum við í bíó á myndina The
Hitchhiker's guide to the galaxy sem er algjör snilld!! Mæli
eindreigið með henni 
En ég held ég ætli bara að fara og horfa á Family guy svona þangað
til að ég nenni að fara að læra...
kv. Sigurdís
»
01.05.2005 12:56:05 / Ágústa
Ákvað að ég yrði nú að skrifa hérna núna víst að ég var að
asnast á netið. Ætli þetta sé ekki síðasti pistillinn sem ég skrifa
í langan tíma því nú eru prófin að byrja á morgun. Ég ætti nú ekki
einu sinni að vera að skrifa hér þar sem ég ætti að vera að læra...
er nefnilega að fara í fyrsta spænskuprófið af tveimur á morgun
klukkan tvö. Get ekki sagt að mér hlakki til! Ætti núna að sitja
sveitt yfir spænskubókunum mínum en af einhverju ástæðum sit ég
fyrir framan tölvuna á netinu.. uss uss! 
En jæja bíst að maður er hérna þá er eins gott að maður segi
einhverjar fréttir... vorum að dimmiter á föstudaginn... dagurinn
byrjaði MJÖG snemma en ég vaknaði klukkan fjögur um morguninn þar
sem við þurftum að vera mætt klukkan fimm uppí skóla til að fara að
skreyta vagnana okkar. Grjóni var svo elskulegur að vakna með okkur
og keyra okkur uppí skóla. Svo þegar við vorum búin að skreyta
vagnana okkar var ekið af stað að vekja kennarana. Við keyrðum útum
allan bæ og vöktum alla kennara skólans held ég. Var allavega orðin
nógu þreytt á að standa á þessum kalda og blauta vagni í marga
tíma! Það var líka hellirigning allan tíman en sem betur fer voru
búningarnir svo hlýjir að manna var bara rétt kalt á nefbroddinum.
Svo fórum við uppí skóla og vorum með læti þar og fórum í leiki við
kennarana og svona og auðvitað unnu nemendurnir Svo fengum við
okkur köku með kennurunum! Löbbuðum svo niður í bæ þar sem við
sungum og fífluðumst á torginu en næsta skref var svo óvissuferð.
Eins og við vorum búnar að komast að þá var ferðinni heitið útí
Hrísey. Þar var farið í ratleik og auðvitað vann liði mitt
en ég held nú samt að það hafi verið Hauki kallinum að þakka. en já
svo fengum við grillaðar pylsur og svo var bara setið og sungið og
haft gaman. Svo þegar var komið aftur í bæinn þá var farið í
Vífilfell á bjórkynningu og svo á Hótel KEA þar sem við fengum að
éta. Svo var bara farið á skemmtistaði bæjarinns. Urðum þó fyrir
vonbrigðum þar sem það var óhemju lítið af fólki á djamminu og var
því bara farið snemma heim. Var samt búin að vera vakandi í 24
klst. en svaf samt ekki nema í 10 tíma eða eitthvað.. og þeir sem
þekka mig vita að þetta er óvenju lítill svefn En já þetta var
ágætis skemmtun.
Jæja mamma kom svo í bæinn á fimmtudeginum og við fórum að
versla útskriftargalla. keyptum buxnadragt sem kostaði ekki minna
en 23. þúsund kr. ágætis eyðsla á peningum þar!
Er svo búin að vera sveitt alla vikuna í að vinna í því að klára
verkefni og var ég að senda það síðast hér áðan. fjúff gott að vera
búin að ljúka því af! 
En jæja þetta er nóg í bili....
(hver er núna duglegust að
skrifa???????????????????????????)
-=Ágústa=-
»
25.04.2005 10:51:10 / Ágústa
»
05.04.2005 16:07:45 / Sigurdís
ARGGG það er aftur byrjaður að snjóa, Munda mínum til mikillar
gleði, en ekki mér því að loksins var orðið autt og mín fékk að
vera rosa svöl að fá bílinn í byen, en gallinn er bara sá að hann
er á sumardekkjum og núna get ég ekki keyrt um á honum, hvers á
maður að gjalda! Ég veit ekki hvað er málið með mig, er ekkert að
komast í gang sko eftir þessa páska, ætlaði t.d. að fara á fætur kl
8 í morgun til að klára að læra undir próf en dröslaðist ekki fyrr
en kl 9 á fætur, og þurfti að taka mit til í flýti til að labba í
skólann.. held ég verði að fara að fá kaffi í æð allann daginn og
gá hvort það virki ekki  En helgin var tekin með trompi eins og
stundum vill gerast hjá okkur.. Partý og djamm á börum bæjarinns
sem leiddi líka af sér nokkur tekíla skot.. en samt ekki of mörg
eins og stundum vill verða..hmmmmm. En næsta helgi verður líka
róleg, því þau gömlu eru að fara í stórborgina og verð ég heima til
að sjá til þess að litlu systkinin mín kveiki ekki í húsinu, og ég
er búin að ákveða að ég ætla að búa til mína eigin, yndisbragðgóða
pízzu.. bara svona láta ykkur vita að því að ég panta þær ekki
alltaf hehehe. Svo er bara spurningin hvort að mar eigi að skella
sér á FranZ Ferdinand sem eru held ég 27. maí.. alveg helvíti
freistandi sko, en efast um það því mar fer á Iron maiden þann 7.
júni, og soltið vafamál að fara 2svar suður með svona stuttu
millibili, Hmpff (eins og Andrés Önd myndi segja) En jæja ætli sé
ekki best að fara að koma sér heim, mér er farið að finnast alveg
óþarflega heitt á þessu bókasafni hérna... fer að lalla heim kv..
sigurdís
»
01.04.2005 15:44:39 / Ágústa
Já Guffa mín þetta blogg er tileinkað þér og ef ég kynni textann
í Guðfinnulaginu þá mundi ég syngja hann fyrir þig en það eina sem
ég kann er : ó Guðfinna... 
Já núna eru bara 13 dagar þangað til að lítið kríli á að fæðast
í heiminn og get ég alveg sagt að mér hlakkar örugglega alveg jafn
mikið til ef ekki meira en foreldrarnir sjálfir.. já ég verð sko
stórmóðguð ef ég verð ekki fyrsta manneskja sem þið hringið í þegar
allt fer á fullt 
En annars er allt lítið að frétta.. páskafríið var bara mjög
rólegt! kom ekki einn einasti gestur allan tíman og því lá ég
mestmegnis og glápti á sjónvarpið og át! Fór reyndar þrisvar sinnum
á ball.. Sálarball, Sentball og svo Quarashiball.... ágætisskemmtun
það svo sem!!!
En já ætli ég verði ekki sú eina sem skrifi hér allaveg næsta
mánuðinn þar sem Hildur einfaldlega skrifar ekki nema þegar að ég
skipa henni að gera það og hún Sigurdís þykist víst
hafa eitthvað allt annað að gera heldur en að blogga þessa
dagana.... Hún er víst komin með steypuveikina greyjið 
Já og svo á hann Arnar frændi afmæli á morgun.. stórafmæli
meirað segja... 25 ára kallinn... TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ!! já
og það er víst eitthvað rosa afmælistpartý svo annaðkveld og verður
víst tekið allharkalega á því 
Já og svo er maður búin að troða sér í þetta blessaða
skólaleikrit hérna... er víst í hári og förðun og svo verð ég á
spotlightinu víst... veit ekkert hvernig það á eftir að ganga!!
dreymdi um daginn að ég væri að vinna við það og var alltaf að
klúðra einhverju og reka mig í einhverja takka og trufla sýninguna
og allir ætluðu bara að fara að myrða mig þannig að... ég veit ekki
hvort að ég á að taka þessu sem viðvörun eða hvað!!!
Öll þessi skólavika er búin að einkennast af vinnu á
bókasafninu... var að vinna í 2 tíma á miðv. 4 tíma á fimm. og svo
2 tíma á föst.. uss það verður feit summa sem ég fæ útborgað í maí

en jæja ég ætla að fara að taka til og henda einhverjum
hálfvitum sem eru að læra uppá bókasafni á föstudagssíðdegi út og
fara heim og taka nokkur lög með sigurdísi í singstar... takið
eftir því að það var hún sem vildi þetta annars er ég að hugsa
um að lána bara singstarið mitt í kvöld svo að Hildur missi sig
ekki í því í kvöld 
jæja blessó hressó
-=ágústa=-
»
18.03.2005 10:27:21 / Sigurdís
Það er góður dagur í dag *blístr blístr* ó já gott fólk í dag er
nebblega að koma páskafrí þegar þessi merkisskóladagur er liðinn,
ummm ég get ekki beðið.. en samt skrítið að hugsa til þess að fyrir
ári síðan var ég að fara til Mallorca á þessum tíma, ohh það var
líka gaman, en ég sé bara fram á að vera mest heima með famílíunni
og reyna að gera eitthvert gagn þar fyrir hjúin, var nú samt að spá
í að fara á tónleika með quarashi sem verða hérna um páskana
Ég fór á myndina Hide and seek í gær með stelpunum, ég er samt
svo vitlaus, ég á ekkert að vera að fara á svona myndir er alltaf
alveg að skíta á mig af hræðslu og er með hendurnar fyrir augunum
mest allan tímann og ef ég er með popp í poka er það
fljúgandi um allt bíóið, en samt finnst mér gaman að fara á
svona. Held annars að ég hafi nu bara staðið mig ansi vel miðað við
suma þarna í bíóinu, öskraði bara einu sinni, en var samt soltið
hrædd við að opna herbergishurðina mína í morgun Svo eftir bíóið
vorum við bara að keyra um bæinn og ákváðum að líta við á dátanum í
tilefni af því að það var fimmtudagur, og þar var ekkert nema
krakkar undir aldri og einhverjir háskólagaurar horfandi
girndaraugum á litlu stelpurnar, fannst það nú ekki mikið sniðugt
og ég held líka að við höfum aldrei staldrað svona stutt við
þar og það var líka alveg yndislegt að vakna EKKI þunn í morgun,
mar er alltaf að læra eitthvað nýtt, híhí.
Það er búið að vera slatta að gera hjá kórnum núna, vorum að
syngja á miðvikudagskvöldið á einhverju harmoníkkuballi hérna í
skólanum, held samt að kórinn hafir verið meginhlutinn af fólkinu
þarna, en það var alveg ágætt, fékk nebblega köku Svo vorum
við líka að syngja núna rétt áðan í gryfjunni, held það hafi ekki
verið mjög gott, heyrði nokkra falska tóna en það skiptir
engu
Nú er maður að reyna að ákveða hvað maður á að gera næsta vetur,
etta er svo erfitt, veit ekkert hvað ég á að gera.. vildi að ég
væri eins og Hildur systir mín sem var örugglega búin að ákveða
hvað hún ætlaði að verða áður en hún fæddist..piff, en ætli mar
vinni ekki bara næsta vetur, taka sér smá pásu frá skóla.
en ætla að hætta núna
kv.. Sigurdís
»
15.03.2005 21:05:42 / Hildur
Já það er e-ð verið að skjóta á mann héran út og suður, en já ég
veit ég hef verið löt við skriftar en ég hef mjög lítið að segja,
þar seinustu helgi fór ég bara á djammið á föstudeginum(þegar Inga
var í bænum) og ekki frásögu færandi en ég var víst pínu
drukkin stelpurnar alltaf að tala um þennan og þessa sem ég
hitti og ég man bara ekkert eftir því. En fór annars suður um
helgina, og gerði ekkert nema eta fór ekki í eina einustu búð og þá
er það slæmt ætlaði að hitta fullt af fólki en það var víst ekkert
af því, kom í bæinn á föstudeginum og beint á árshátíð olís, ekkert
sérstakt þekkti engan vissi ekki hver neinn var, varla, en það var
mun skemmtilegar um kvöldið þegar maður fór að labba um og spjalla
við fólk hitti strákana sem ég var að vinna með seinasta sumar, fór
síðan bara snemma heim að sofa samt á eftir mömmu.
Laugardeginum vakin eldsnemma mæting í afmæli hjá litla frænda
og matarboð á Selfoss síðan var undirbúningur undir fermingu langt
fram á kvöld, steinrotaðist þegar heim var komin, vakin eldsnemma
mæting í kirkju brunað heim til fermingabarnsins veisla klukkan
tvö, svo vann maður í því að sjá til þess að nóg væri handa fólkinu
á borðinu eltingaleikur við litlu börnin, og síðan þrif alveg
yndislegt síðan tóku við tvær hiemsóknir með mömmu og pabba fór
heim og sofnaði áður en ég lagðist á koddan þreytan var þvílík, og
svo var bara brunað norður á mánudagsmorguninn fyrir allar aldir og
keyrt mann beint í vinnuna.
Svona afdrifarík var mín helgi náið reyndar að horfa á idolið á
upptöku on mín vann hún Hildur var búin að bíða spennt allt kvöldið
til að geta horft á idolið er komið var heim af árshátíð og nei
þegar ég var að fara kjöftuðu ekki einhverjar kellingar úrslitunum
þannig að ég var ekkert að flýta mér bara labbaði sallaróleg heim á
mínum háhæluðu skóm var reyndar heppin með það að Gestur (gamall
vinnufélagi) býr rétt hjá ömmu þannig ég fékk félagsskap heim.
Enn sorry Ágústa náði ekki að gera pistilinn minn áhugaverðari
en þetta anda ekkert afdrifaríkt búið að ggerast seinustu daga.
I´m out Hildur
»
15.03.2005 16:52:13 / Ágústa
Hæ hæ og halló.. ég hef nú ákveðið að bæta aðeins upp
letina í okkur stelpunum með því að skrifa smá hér inná þessa
blessuðu síðu okkar!! Þar sem það er lengst frá því að hún Hildur
hefur skrifað hér þá hef ég ákveðið að gefa henni titilinn "versti
bloggarinn" og þið fáið ekki einu sinni að kjósa um það því að ég
ræð hér hehe verður hún að bæta þetta upp með því að skrifa
stórfenglegan og skemmtilegan pistil hér innan sólarhrings en
annars festist þessi titill við hana það sem eftir er
múhahahahahaha 
Annars hef ég nú lítið að segja, síðasta helgi fór í leti og
sjónvarpsgláp ásamt því að ég át mikið af mat, og þá helst óhollum
Keyrði heim á fimmtudeginum svo að hún móðir mín yrði nú ekki
ein í kotinu því hann faðir minn skellti sér bara til
stórborgarinnar á eitthvað námskeið. Var ég bara mjög dugleg og fór
með mömmu í fjárhúsin að gefa þessum rollum okkar að éta og drekka.

Eldaði dýrindis pizzu á föstudagskveldinu sem var étin með bestu
lyst og svo var það bara Ædolið... og auðvitað vann hún Hildur
Vala... hvað annað!! samt var hún Heiða helvíti góð og var ég orðin
svolítið smeik um að hún myndi vinna ágætis skemmtun þetta!
restin af helginni fór svo í sjónvarpsgláp og svefn en ég var
reyndar líka svolítið dugleg og lærði heima í þýsku 
Nú er bara planið að finna sér spænskukennara sem getur kennt
mér allt um spænsku svo að ég nái nú spænskuáföngunum sem ég er í
og þætti mér vænt um að ef þið dygguð aðdáendur mínir vitið um
einhvern sem væri til í að kenna mér spænsku kannski gegn gjaldi þá
væri það alveg hreint frábært!!! langar alveg rosalega að
útskrifast í vor nefnilega því ég nenni ekki að hanga hér á
Akureyri mínútu lengur en ég þarf....
Svo er kannski bara málið að fara að vinna á Egilsstöðum í
sumar... kolla systir ætlar kannski að reyna að redda mér vinnu á
Tommaborgurum þar sem hún er að fara að vinna! Líst mér alveg
ágætlega á þetta þar sem mér langar ekkert sérstaklega að enda
aftur í eldhúsinu á sjúkrahúsinu...
en jæja ég ætla að halda áfram að vinna, skrifa bara meira næst
því ég veit að þið fáið aldrei nóg af bullinu í mér er það nokkuð??

-=Ágústa=-
»
07.03.2005 13:51:24 / Sigurdís
Þessi heldi fór nú aðalega í djamm og sukkerí og svo að liggja í
þynnku þar inn á milli og borða kalda pízzu og jappla á
smarties.
Inga ákvað að koma í heimsókn um helgina og líta á ómenninguna
hér á akureyri, finnst nú samt að hún ætti nú bara að flytja hingað
aftur og hætta þessu bullu En á föstudagskvöldið byrjuðum við að
fara til guðfinnu, elda og horfa á idol og fórum svo heim til mín
og ágústu og tókum lagið í singstar, en svo fengum við Inga nú
fljótt leið á því og töltum niðrí bæ og skildum kellunar eftir
gólandi eins og þær ættu lífið að leysa, en þær sáu fljótt að sér
og eltu okkur vorum nú aðalega bara á amor vegna þess að nú
er búið að opna uppi aftur þar þannig að það er hægt að fara þangað
og dansa og hafa gaman. Og var það ekkert smá svona flashback frá
því mar var á 2 ári.. því að við vorum alltaf þar þá.Ég, Ágústa og
Hildur enduðum svo í einhverju partýi og vorum ekki komnar heim
fyrr en um 8 um morguninn eða þangað til að gellurnar sem bjuggu
þarna ákváðu að henda öllu kvenkyns þaðan út til að geta farið með
vel völdum ungum drengjum... t.d. sjóræningajnum okkar ágústu! í
gufubað...pifff og Inga fór heim í fýlu það kvöld..
En á laugardagskvöldið fórum við svo í Sjallan á skímo AGAIN!!!
ekki samt halda það að ég sé mikill skímó fan eitthvað og var það
nú bara alveg ágætt og fór hún Inga ekki í fýlu þá
Held samt að mar hafi nú sungið aðeins og mikið singstar um
helgina.. allavegana kem ég ekki upp boffsi núna og ef ég reyni að
tala er það eins og strákur í mútum þannig að ég er ekkert mikið að
opna á mér kjaftinn í dag. En ég er líklegasta að fara á Iron Maden
tónleikana með LITLU systkinin mín.. veit ekki alveg hvernig ég á
að koma þeim lifandi þaðan út en það verður örugglega stuð
en nenni eki meiru.. kv.. Sigurdís
»
03.03.2005 17:41:47 / Ágústa
Alveg er það ótrúlegt hvað maður er latur við að skrifa, en ég
vissi það nú reyndar strax og við stofnuðum þessa síðu en ég vonaði
nú að hinar stelpurnar myndu bæta upp letina hjá mér en svo virðist
nú reyndar ekki vera.. við erum hver annarri latari við að skrifa!!

En já byrjunin á þessari viku fór öll í það hjá mér að skrifa
ritgerð í helvítis fjölmiðlafræðinni og var ég orðin frekar
stressuð á þriðjudaginn þegar að ég var ekki komin nema með 2 bls
af fjórum og var þá orðin 6 dögum of sein í að skila... tók ég þá
bara miðvikudaginn með trompi, sat allan daginn inná bókasafni og
kláraði hana og endaði hún sem 5 bls, forsíða og heimildarskrá og
létti mér mikið þegar að ég stakk ritgerðinni í hólfið hennar
Rakelar Svo leið mér ennþá betur í dag þegar að tvær aðrar
stelpur skiluðu ritgerðinni í tímanum í morgun.. þá vissi ég að ég
hefði ekki verið síðust að skila!!! Annars er næsta spark í
rassinn til þess að drífa mig í að taka spænskupróf en ég held að
ég ætli að geyma það til helgarinnar!!
Fórum svo stelpurnar til Guffu og Badda í gær og við grilluðum
okkur þessar dýrindis kótelettur og hamborgara! Rosalega var þetta
góður matur, leið mér bara eins og það væri komið sumar og sól og
við værum bara stödd í útilegu! (utan við tímann þegar að ég stóð
úti í kuldanum og var að grilla veisluréttina og belíf jú mí það
var sko kalt! Sátum við svo lengi á eftir við sjónvarpið
því við gátum einfaldlega ekki staðið á fætur því að við vorum svo
södd... Svo var ég næstum því búin að missa heyrnina því að
Klara tísti svo hátt uppí eyrað á mér! Ég get svo svarið það ég
varð heyrnalaus í nokkrar sekúndur!! 
Þetta er svo þriðji dagurinn minn í þessari viku sem ég er að
vinna á bókasafninu.. Sirrý frænka er veik þannig að hver annar á
að fylla í skarðið nema ég bjargvætturinn?? Skúringakonan sagði
líka að ég væri rosa dugleg Þetta er líka svo sem
allt í lagi þannig lagað séð, utan við það að ég er að drepast úr
hungri og langar að komast heim til að éta! Er að pæla í að henda
bara þessu fólki útaf safninu því þetta eru flest allt vinkonur
mínar sem eru að þykjast vera eikkað duglegar að læra!! 
Ég er svo að fara heim í sveit á morgun í fyrsta skipti í 3
vikur eða eikkað... ætla ég mér að nota þessa helgi í eintóma leti,
horfa á ædolið, nokkrar myndir og éta eins og svín... hlakkar mér
MJÖG mikið til!! 
Jæja ætla að segja þetta gott í dag
-=Ágústa=-
»
Síður: 1 2 3
|
|